SÖNGUR 158
Senn kemur dagurinn
1. Fögur jörðin er,
vönduð gjöf frá þér,
þú tíma þér tókst,
fullkomna undirbjóst.
Vilji þinn því sést,
heimur móti berst,
þú hefur ei breyst,
því getum örugg treyst.
(VIÐLAG)
Jehóva faðir minn,
senn kemur dagurinn,
veittu mér úthald og þrek.
Rætast öll loforð þín,
rétt eins og sólin skín.
Dagur þinn öruggur er,
ei seinn er á sér.
2. Vinir sofa rótt,
senn er liðin nótt,
þú þráir þá stund
að vekja᾿ af værum blund.
Rætist okkar þrá
ástvini að sjá,
með lifandi trú
við bíðum eins og þú.
(VIÐLAG)
Jehóva faðir minn,
senn kemur dagurinn,
veittu mér úthald og þrek.
Rætast öll loforð þín,
rétt eins og sólin skín.
Dagur þinn öruggur er,
ei seinn er á sér.
3. Skimar allan heim
leitandi að þeim
sem andvarpa᾿ og þrá
þinn sannleika að sjá.
Boðun eflum við
kappsöm þér við hlið,
það upphefur þig
og styttir okkar bið.
(VIÐLAG)
Jehóva faðir minn,
senn kemur dagurinn,
veittu mér úthald og þrek.
Rætast öll loforð þín,
rétt eins og sólin skín.
Dagur þinn öruggur er,
ei seinn er á sér.
Jehóva, styrk veittu mér!
(Sjá einnig Kól. 1:11.)