SÖNGUR 17
„Ég vil“
-
1. Kristur sýndi fullkomna ást,
frá himni kom, fús til að þjást.
Þekkti vel fólksins þörf
er vann hann sín störf,
gaf tíma sinn, aldrei það brást.
Samúðin í hjarta hans brann
og sjúka því læknaði hann.
Sínu umboði gerði hann góð skil
og fúslega sagði: „Ég vil.“
-
2. Í hans fótspor fetum hvern dag,
Guðs kenningu fegra mun það.
Förum ástrík og góð
með dýrmætan sjóð
og hvetjum og bætum fólks hag.
Þegar einhver þarf hjálparhönd
við styrkjum þá vináttubönd.
Þegar ekkja’ eða einmana þrá yl
skalt þú fljótur svara: „Ég vil.“
(Sjá einnig Jóh. 18:37; Ef. 3:18, 19; Fil. 2:7.)