SÖNGUR 27
Börn Guðs verða opinber
-
1. Guð bráðum birta mun sín börn,
hann stað þeim bjó sér hjá.
Á himni vegsemd verða krýnd
og mikil völd þau fá.
(VIÐLAG)
Börn Guðs brátt verða opinber
með Kristi himnum á.
Í sigri hans þau eiga þátt,
með honum umbun fá.
-
2. Og bráðum kallar Kristur þau
sem verða hrifin burt.
Þau kallar drottinn drottna heim,
til valda hefur smurt.
(VIÐLAG)
Börn Guðs brátt verða opinber
með Kristi himnum á.
Í sigri hans þau eiga þátt,
með honum umbun fá.
(MILLIKAFLI)
Og síðan hann með sínum lýð
mun heyja lokastríð.
Þá gleðitími tekur við
sem varir alla tíð.
(VIÐLAG)
Börn Guðs brátt verða opinber
með Kristi himnum á.
Í sigri hans þau eiga þátt,
með honum umbun fá.
(Sjá einnig Dan. 2:34, 35; 1. Kor. 15:51, 52; 1. Þess. 4:15-17.)