Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 28

Hver er þinn vinur, Guð?

Hver er þinn vinur, Guð?

(Sálmur 15)

  1. 1. Hver er þinn vinur, Guð?

    Hver gista tjald þitt má?

    Hver fær þinn vinskap, hver fær þitt traust,

    hver þína dásemd sjá?

    Sá sem Guðs orði ann,

    ætíð hann treystir þér.

    Sá sem er réttvís, tryggur og trúr

    tileinkar sannleik sér.

  2. 2. Hver er þinn vinur, Guð?

    Hver má þig nálgast nú?

    Hver er til yndis, hver fær þig glatt,

    hverra nöfn þekkir þú?

    Allra sem ár og síð

    upphefja nafnið þitt,

    allra sem hafa heimfært þitt orð

    hreinskilnir á líf sitt.

  3. 3. Áhyggjum oft til þín

    úthellum við í bæn.

    Binda þig okkur ástúðarbönd,

    umhyggja þín er væn.

    Við þráum vinskap þinn,

    vaxandi hann því fer.

    Engan við betri átt getum vin,

    alls engan betri þér.