SÖNGUR 45
Hugsun hjarta míns
-
1. Ég bið að hugsun hjarta míns
sé heilnæm og þér þóknanleg.
Hún, Guð minn, stöðugt gleðji þig
er geng ég staðfastur þinn veg.
Er áhyggjur mér íþyngja,
mér órótt er um miðja nótt,
ég hugsa megi þá um þig
og þá mér verður aftur rótt.
-
2. Allt sem er göfugt, satt og hreint
og sérhvern dyggðarinnar sið,
já, allt sem gott er afspurnar,
ég hugsi um og öðlist frið.
Hver hugsun þín svo einstök er,
þeim enginn festir tölu á.
Ég stöðugt orð þín íhuga,
með allan hugann er þér hjá.
(Sjá einnig Sálm 49:4; 63:7; 139:17, 23; Fil. 4:7, 8; 1. Tím. 4:15.)