SÖNGUR 67
Boða trú
-
1. Guð okkur fyrirmæli gaf,
við þeim getum ætíð tekið mið af.
Við ræðum því reiðubúin nú
um rök sem styðja okkar von og trú.
(VIÐLAG)
Já, boða trú,
heyri allir nær og fjær.
Boða trú,
heimsins endir færist nær.
Boða trú
öllum auðmjúkum ávallt.
Boða trú
um landið allt.
-
2. Andstaða okkur getur mætt,
grimmar ofsóknir og smán okkur hrætt.
Ef boðunin lítinn ávöxt ber
við berum traust til Guðs sem æðstur er.
(VIÐLAG)
Já, boða trú,
heyri allir nær og fjær.
Boða trú,
heimsins endir færist nær.
Boða trú
öllum auðmjúkum ávallt.
Boða trú
um landið allt.
-
3. Tímabil hagkvæm hljótum við,
fólki hjálpum þá að öðlast Guðs frið.
Með hjálp okkar hlýðnir fá Guðs laun,
þá helgum við nafn Jehóva í raun.
(VIÐLAG)
Já, boða trú,
heyri allir nær og fjær.
Boða trú,
heimsins endir færist nær.
Boða trú
öllum auðmjúkum ávallt.
Boða trú
um landið allt.
(Sjá einnig Matt. 10:7; 24:14; Post. 10:42; 1. Pét. 3:15.)