SÖNGUR 71
Við erum hersveit Jehóva
-
1. Stríðsgarpar Guðs við erum,
Kristur stýrir för.
Þótt Satan okkur ógni
erum við ekki rög.
Þjónum áfram trygg og trú,
boðum út um allt.
Sameinuð og staðföst
syngjum hátt og snjallt.
(VIÐLAG)
Jehóva á sér hersveit,
sameinuð hún fer.
Glöð hún lýsir yfir:
„Guðs stjórn ríkir hér.“
-
2. Við erum hersveit Drottins,
tölum í hans stað.
Sauðum sem hrjáðir eru
leitum við stöðugt að.
Finnum þá og nærum vel,
hlúa að þeim skal.
Bjóðum þeim að læra
hér í ríkissal.
(VIÐLAG)
Jehóva á sér hersveit,
sameinuð hún fer.
Glöð hún lýsir yfir:
„Guðs stjórn ríkir hér.“
-
3. Hersveit Guðs hérna stendur,
hlýðin kalli Krists.
Alvæpni Guðs við berum,
höldum stefnunni viss.
Varkár en með trúfesti
verjum sannleikann.
Móti hvers kyns ógnum
hræðumst engan mann.
(VIÐLAG)
Jehóva á sér hersveit,
sameinuð hún fer.
Glöð hún lýsir yfir:
„Guðs stjórn ríkir hér.“