SÖNGUR 78
Kennum orð Guðs
-
1. Þeir sem nú kenna sannleikann,
þeir sína hlutdeild fá
og hag þeir sjálfir hafa’ af því
og hamingjuna sjá.
Við sjáum kennslu sonar Guðs
sem sýndi mönnum ást.
Þeir tengsl við Guð sinn geta eignast
og gagnkvæmt traust mun nást.
-
2. Er orð Guðs fólkið fræðum um
við fögur stundum verk.
Af einlægni þeim leggjum lið,
sú löngun er svo sterk.
Af ákefð orð Guðs rannsökum,
þar er hin góða frétt.
Þá gefum fús úr góðum sjóði
sem gerir kjörin létt.
-
3. Guð býður okkur bjargirnar
svo boð hans gerum kunn.
Ef berum traust þá biðjum hann
sem bænum svara mun.
Við elskum orð Guðs, sannleikann,
þar allt er rétt og satt.
Og ætíð elskum þá sem hjálpum,
þeir einnig Guð fá glatt.
(Sjá einnig Sálm 119:97; 2. Tím. 4:2; Tít. 2:7; 1. Jóh. 5:14.)