SÖNGUR 97
Lífið er háð orði Guðs
-
1. Lífið sjálft er Guðs orði háð,
öllu sem er sagt frá.
Okkur brauðið eitt nægir ei,
nærumst orði Guðs á.
Gleði finn ég og innri frið,
bjartri framtíð er spáð.
(VIÐLAG)
Okkur brauðið eitt nægir ei,
orði Guðs erum háð.
Okkur daglega nærir það,
orði Guðs erum háð.
-
2. Sönn er sagan sem þar er skráð,
segir frá fyrri tíð.
Menn og konur er sýndu trú,
hugrökk studdu Guðs lýð.
Hvatning fáum við ávallt er
lesum um þeirra dáð.
(VIÐLAG)
Okkur brauðið eitt nægir ei,
orði Guðs erum háð.
Okkur daglega nærir það,
orði Guðs erum háð.
-
3. Dag hvern lesum við orðin skráð,
huggun Guðs fáum við.
Þegar kjarkur á þrotum er
veitir hann styrk og frið.
Alltaf varðveitum hjarta í
fjársjóð Guðs og holl ráð.
(VIÐLAG)
Okkur brauðið eitt nægir ei,
orði Guðs erum háð.
Okkur daglega nærir það,
orði Guðs erum háð.
(Sjá einnig Jós. 1:8; Rómv. 15:4.)