Hoppa beint í efnið

GÓÐ RÁÐ HANDA FJÖLSKYLDUNNI | HJÓNABANDIÐ

Hvernig geturðu brugðist við pirrandi eiginleikum í fari maka?

Hvernig geturðu brugðist við pirrandi eiginleikum í fari maka?
  •   Þér finnst gaman að gera hluti óvænt en maki þinn þarf að skipuleggja allt.

  •   Þér finnst gott að vera í einrúmi og þú ert hlédrægur en maki þinn er alltaf til í að vera innan um fólk.

 Hefur maki þinn eiginleika sem pirrar þig? Það getur skaðað hjónabandið ef þú einblínir á hann. Biblían segir að sá sem staglast á því sem pirrar hann valdi vinslitum. – Orðskviðirnir 17:9.

 Gætirðu lært að sjá pirrandi eiginleika í jákvæðara ljósi frekar en að láta hann valda leiðindum í hjónabandinu?

Í þessari grein

 Hvernig geturðu brugðist við pirrandi eiginleikum í fari maka?

 Eiginleiki sem pirrar þig í fari maka þíns gæti verið nátengdur eiginleika sem þú dáist að. Skoðum þrjú dæmi:

 „Maðurinn minn er oft seinn að koma hlutum í verk eða koma sér af stað þegar við erum að fara eitthvað. En þessi eiginleiki gerir það líka að verkum að hann er þolinmóður – líka við mig. Stundum pirrar það mig hvað hann er rólegur en þetta er líka eitthvað sem ég elska við hann.“ – Chelsea.

 „Konan mín skipuleggur allt af mikilli nákvæmni. Hún þarf að finna að hún hafi fulla stjórn á hlutunum og það getur verið pirrandi. Á hinn bóginn gerir þessi eiginleiki það að verkum að hún er aldrei kærulaus.“ – Christopher.

 „Það getur verið pirrandi hvað manninum mínum virðist stundum standa á sama um hluti. En á sama tíma er það einmitt það sem ég laðaðist að í fari hans í upphafi, hvað hann er afslappaður. Ég dáist að því hvað hann getur haldið rónni í erfiðum aðstæðum.“ – Danielle.

 Chelsea, Christopher og Danielle komust að því að styrkleiki og veikleiki maka eru oft tvær hliðar á sama pening. Það er ekki hægt að losna við veikleika án þess að missa um leið styrkleikann, rétt eins og maður getur ekki bara hent annarri hlið á peningi.

 Sumir eiginleikar hafa að sjálfsögðu ekki jákvæðar hliðar. Biblían bendir til dæmis á að sumir séu reiðigjarnir. (Orðskviðirnir 29:22) Þá ætti maður að gera allt sem í manns valdi stendur til að losa sig við „hvers kyns biturð, reiði, bræði, öskur og svívirðingar“. aEfesusbréfið 4:31.

 En þegar eiginleiki fer einfaldlega í taugarnar á manni ætti maður að fylgja ráðinu: „Haldið áfram að umbera hvert annað … jafnvel þegar þið hafið ástæðu til að kvarta undan öðrum.“ – Kólossubréfið 3:13.

 Reyndu að koma auga á jákvæðu hliðina á eiginleikanum – það sem dró þig ef til vill að maka þínum í upphafi. Joseph sem er giftur segir: „Að horfa á eiginleika sem pirrar mann í fari makans er eins og að horfa á hvassa brún demants en kunna ekki að meta hvernig hann glitrar.“

 Hugmynd að umræðum

 Skoðið fyrst eftirfarandi spurningar hvort í sínu lagi. Ræðið síðan saman um svörin.

  •   Hefur maki þinn eiginleika sem þér finnst orsaka ágreining? Ef svo er, hvaða eiginleiki er það?

  •   Er þetta alvarlegur galli eða bara eitthvað sem er pirrandi?

  •   Er jákvæð hlið á málinu? Ef svo er, hver er hún og hvers vegna kanntu að meta þennan þátt í persónuleika maka þíns?