Hvað segir Biblían um páskasiðvenjur?
Svar Biblíunnar
Páskasiðvenjur, eins og við þekkjum þær í dag, eiga sér enga stoð í Biblíunni. Ef við lítum nánar á þær kemur í ljós að margar þeirra eiga uppruna sinn í fornum helgisiðum frjósemisdýrkunar. Hugleiddu eftirfarandi.
Nafnið: Í alfræðiorðabókinni Encyclopædia Britannica segir: „Uppruni enska orðsins Easter [á íslensku páskar] er óviss en engilsaxneski presturinn Bede Venerable, sem var uppi á 8. öld, taldi það tengjast Eostre, gyðju dögunar og vors hjá Engilsöxum.“ Aðrir setja orðið í samband við fönikísku frjósemisgyðjuna Astarte sem á sér hliðstæðu í babýlonsku frjósemisgyðjunni Ístar.
Hérar, kanínur: Þetta eru frjósemistákn og „eiga rætur að rekja til fornra táknmynda og siðvenja tengdum heiðnum vorhátíðum sem haldnar voru í Evrópu og Mið-Austurlöndum.“ – Encyclopædia Britannica.
Egg: Í heimildarriti segir að leitin að páskaeggjum, sem páskahérinn á að hafa komið með, „sé ekki bara leikur barna heldur beri keim af fornum frjósemishelgisið“. (Funk & Wagnalls Standard Dictionary of Folklore, Mythology and Legend) Í sumum menningarsamfélögum trúði fólk því að skreytt páskaegg „gætu, líkt og fyrir kraftaverk, veitt hamingju, velgengni, góða heilsu og vernd“. – Traditional Festivals.
Ný spariföt: „Það var bæði talinn dónaskapur og boða ógæfu ef fólk fagnaði komu skandínavísku vorgyðjunnar, eða Eastre, í nokkru öðru en nýjum klæðnaði.“ – The Giant Book of Superstitions.
Guðsþjónustur við sólarupprás: Talið er að þær eigi uppruna sinn í helgisiðum sem sóldýrkendur „stunduðu við vorjafndægur þegar þeir fögnuðu sólinni og krafti hennar til að vekja nýtt líf hjá öllu sem vex“. – Celebrations – The Complete Book of American Holidays.
Í bókinni The American Book of Days er sagt um páskasiðvenjur: „Það leikur enginn vafi á því að snemma á dögum kirkjunnar voru teknir upp gamlir heiðnir siðir og þeim gefið kristið yfirbragð.“
Biblían varar okkur við því að óhreinka tilbeiðsluna á Guði með því að fylgja hefðum og siðum sem eru honum vanþóknanlegir. (Markús 7:6-8) Í 2. Korintubréfi 6:17 segir Jehóva Guð: „Skiljið ykkur frá þeim. Snertið ekki neitt óhreint.“ Margar siðvenjur páskanna eiga uppruna sinn í heiðni og þeir sem vilja þóknast Guði halda því ekki upp á þessa hátíð.