JW LIBRARY
Rit, myndbönd og hljóðskrár – Android
Með JW Library getur þú lesið og skoðað hundruð bóka, bæklinga, smárita og myndbanda án þess að vera nettengdur.
Þessar leiðbeiningar útskýra hvernig þú getur sótt, eytt og uppfært rit. Leiðbeiningarnar eiga líka við um myndbönd og hljóðskrár.
Sækja rit
Þú getur sótt eins mörg rit og þú vilt til að lesa og fletta án þess að vera nettengdur.
Opnaðu valmyndarstikuna og veldu Útgáfa til að sjá lista yfir útgefið efni.
Smelltu á tungumálahnappinn til að sjá lista yfir öll tungumálin sem rit eru fáanleg á. Veldu tungumálið sem þú vilt sjá. Tungumálin, sem þú notar oftast, birtast efst á listanum. Þú getur líka leitað að tungumáli með því að slá inn heiti þess.
Það eru nokkrar mismunandi leiðir til að finna rit í JW Library.
Í hlutanum Flokkar getur að líta útgefið efni á tungumálinu sem þú ert að nota, flokkað eftir tegund. Þar er að finna flokka eins og bækur, smárit og myndbönd. Sumir flokkanna hafa undirflokka. Til dæmis er Varðturninn flokkaður eftir árgangi og myndbönd flokkuð eftir viðfangsefni. Smelltu á Allir flokkar til að fara efst á listann.
Í hlutanum Nýjast birtast rit sem hafa nýlega verið gefin út á tungumálinu sem þú ert að nota.
Smelltu á rit til að sækja það í tækið þitt.
Skýjatákn við hliðina á riti merkir að það hefur ekki verið sótt. Smelltu á rit til að sækja það. Þegar niðurhalinu er lokið hverfur skýið. Smelltu aftur á ritið til að lesa það.
Í hlutanum Niðurhalað birtast öll rit sem þú hefur sótt, óháð tungumáli. Þú getur raðað efninu á listanum á þrjá vegu: Mest notað, Minnst notað eða Stærð.
Eyða riti
Þú getur eytt riti ef þú þarft ekki lengur á því að halda eða ef þú vilt losa um geymslupláss.
Opnaðu valmyndarstikuna og veldu Útgáfa og síðan flokk (til dæmis Bækur) til að fá upp lista yfir rit. Ýttu á hnappinn Meira og veldu síðan Eyða.
Ef þú þarft að losa um geymslupláss geturðu eytt ritum sem þú notar sjaldan eða eru mjög stór. Opnaðu valmyndarstikuna og veldu Útgáfa. Veldu síðan Niðurhalað og raðaðu efninu eftir minnst notað eða stærð. Eyddu þeim ritum sem þú þarft ekki á að halda.
Uppfæra rit
Uppfærslur geta af og til verið gefnar út fyrir rit sem þú hefur sótt.
Uppfærslumerki birtist við hliðina á riti sem hægt er að uppfæra. Þegar þú velur ritið birtast skilaboð um að uppfærsla sé í boði. Veldu Sækja til að uppfæra eða Seinna til að halda áfram að lesa í útgáfunni sem þú hefur.
Til að sjá hvort uppfærslur séu í boði fyrir rit sem þú hefur sótt geturðu opnað valmyndarstikuna og valið Útgáfa og síðan Niðurhalað. Ef hægt er að uppfæra einhver rit birtist hnappurinn Uppfærslur í boði. Veldu hann til að sjá hvaða rit eru tilbúin til uppfærslu. Smelltu á rit ef þú vilt uppfæra það eða veldu Uppfæra allt til að sækja allar uppfærslur sem eru í boði.
Þessir eiginleikar komu fyrst út í febrúar 2015 með JW Library 1.4 sem virkar á Android útgáfu 2.3 og nýrri. Ef þú sérð ekki þessa eiginleika skaltu fylgja leiðbeiningunum í greininni „Fyrstu skrefin í JW Library – Android“ undir „Sæktu nýjustu útgáfu“.