Hoppa beint í efnið

Eru Vottar Jehóva síonistar?

Eru Vottar Jehóva síonistar?

 Nei, þeir eru ekki síonistar. Vottar Jehóva eru kristnir og byggja trú sína á Biblíunni. Sum trúarbrögð kenna að það tengist uppfyllingu á spádómum Biblíunnar að gyðingar skuli safnast saman í Palestínu. En Vottar Jehóva eru ekki þeirrar skoðunar. Þeir trúa ekki að þessi framvinda mála sé sögð fyrir í Biblíunni. Í henni er reyndar engri mannlegri stjórn eða þjóðflokki gert hærra undir höfði en öðrum. Í Varðturninum, tímariti sem Vottar Jehóva gefa út, hefur komið skýrt og greinilega fram að stjórnmálahugmyndir síonista eigi sér enga stoð í Biblíunni.

 Í Íslensku alfræðiorðabókinni segir að síonismi sé „þjóðernisstefna Gyðinga sem hafði það að markmiði að stofna gyðingaríki í Palestínu“. Síonisminn er bæði af trúarlegum og stjórnmálalegum toga. Vottar Jehóva taka ekki undir síonisma á trúarlegum grundvelli og eru algerlega hlutlausir gagnvart stjórnmálastefnu hans.

 Söfnuður Votta Jehóva er eingöngu trúarsöfnuður og styður ekki stjórnmálastefnur af neinu tagi, ekki heldur síonisma. Margar frásögur staðfesta hlutleysi Votta Jehóva í stjórnmálum. Í sumum löndum hafa þeir mátt þola grimmar ofsóknir vegna þess að þeir gáfu ekki eftir hvað varðar hlutleysi. Við erum sannfærð um að aðeins ríki Guðs á himnum geti komið á varanlegum friði á jörð. Engin mannleg stjórn eða hreyfing getur komið því til leiðar.

 Að hlýða landslögum er ein af grundvallarreglum Votta Jehóva hvar í heiminum sem þeir búa. Þeir gera ekki uppreisn gegn yfirvöldum og taka ekki þátt í stríðsátökum.