SÖNGUR 90
Gefum gætur hvert að öðru
-
1. Ef gefum gætur hvert að öðru
til góðra verka hvetjum við.
Þá stöðugt styrkjast kærleiksböndin
er stuðlum eining að og frið.
Og meðal okkar ríkir elska
sem eykur kjark á raunastund.
Já, athvarf söfnuðirnir eru,
þar eigum vernd á traustri grund.
-
2. Það orð sem talað er í tíma
fær tiltrú veitt og léttir kjör.
Við heyrum hughreystandi orðin
er hollir vinir veita svör.
Hve sælt er það að vinna saman
með sömu markmið, von og störf.
Við stöðuglega stöndum saman
og stuðning veitum eftir þörf.
-
3. Með augum trúar sjáum táknin,
að tími dómsins færist nær.
Við þörfnumst þess að safnast saman,
þar sanna vernd Guð okkur fær.
Með fólki Jehóva við förum,
því fylgir blessun alla tíð.
Svo gefum gætur hvert að öðru
mjög gæskurík um ár og síð.
(Sjá einnig Lúk. 22:32; Post. 14:21, 22; Gal. 6:2; 1. Þess. 5:14.)